
Fjarhjálpin er þjónusta sem Tölvu & Símavaktin býður notendum svo þeir geti fengið sem mest út úr tölvubúnaði sínum.
Tölvu & Símavaktin notar fullkominn hugbúnað og vélbúnað frá Bomgar (C) sem virkar þannig að þegar notandinn fer á síðuna hjá okkur hjalp.tolvuvaktin.is og smellir þar á nafn tæknimanns sem er á vakt þá sækir notandinn lítið forrit sem gerir tölvuþjóninum okkar kleift að tengjast við vél notandans á öruggan og einfaldan máta.
Þegar viðgerðinni er lokið eyðist svo forritið út sjálfkrafa og er því ekki hægt að fara inn á tölvuna eftir á nema óskað sé eftir því.
